Ajax hefur staðfest að Daley Blind sé orðinn leikmaður Manchester United.
Beðið hefur verið eftir staðfestingunni í allan dag en viðræður við leikmanninn drógust eitthvað á langinn.
Beðið hefur verið eftir staðfestingunni í allan dag en viðræður við leikmanninn drógust eitthvað á langinn.
Blind er 24 ára hollenskur landsliðsmaður sem kemur frá Ajax en hann kemur úr unglingastarfi félagsins.
Blind getur bæði leikið sem vinstri bakvörður og sem djúpur miðjumaður en hann lék sem vængbakvörður fyrir Louis van Gaal og hollenska landsliðið á HM í Brasilíu. Einnig getur hann spilað sem einn af þremur miðvörðum.
Kaupverðið er 14 milljónir punda og skrifaði Blind undir fjögurra ára samning.
Athugasemdir