Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. september 2014 17:40
Elvar Geir Magnússon
Falcao að mæta í læknisskoðun hjá Man Utd
Falcao er á leið í læknisskoðun.
Falcao er á leið í læknisskoðun.
Mynd: Getty Images
Þegar þessi orð eru skrifuð er Falcao, framherji Monaco, á leið frá flugvellinum í Manchester til Carrington æfingasvæðis Manchester United.

Falcao hefur verið orðaður við mörg stórlið í sumar og um helgina var hann sterklega orðaður við Real Madrid.

Falcao mun fara í gegnum læknisskoðun í kvöld og Manchester United hefur svo tíma til að ganga frá öllum pappírum til klukkan 23 í kvöld.

Skiptar skoðanir eru á því hvort þetta sé einmitt sá leikmaður sem United þarf á að halda en Falcao hefur alltaf skilað mörkum þar sem hann hefur spilað.



Athugasemdir
banner
banner