Falcao, framherji Monaco, er á leið til Manchester United á láni út tímabilið en fjölmargir enskir fjölmiðlar greindu frá þessu nú rétt í þessu.
Samkvæmt frétt Sky mun Falcao ganga til liðs við United á láni ef ekkert óvænt kemur upp í læknisskoðun.
Samkvæmt frétt Sky mun Falcao ganga til liðs við United á láni ef ekkert óvænt kemur upp í læknisskoðun.
Falcao hefur verið orðaður við mörg stórlið í sumar og um helgina var hann sterklega orðaður við Real Madrid.
Þessi öflugi Kolumbíumaður er hins vegar á leið til Old Trafford.
Talið er að Falcao muni koma til Manchester með einkaflugvél frá Nice eftir hádegi til að ganga frá samningum áður en félagaskiptaglugginn lokar í kvöld.
Athugasemdir