Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 01. september 2014 21:33
Ívan Guðjón Baldursson
Gaston Ramirez til Hull (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Gaston Ramirez er genginn til liðs við Hull City á lánssamning frá Southampton.

Úrúgvæinn verður hjá Hull út tímabilið og er líklegt að Hatem Ben Arfa bætist við leikmannahópinn innan skamms.

Ramirez er 23 ára gamall og hefur ekki tekist að halda sæti sínu í byrjunarliði Southampton frá því að hann gekk til liðs við félagið á 12 milljónir punda fyrir tveimur árum.

Ramirez verður annar Úrúgvæinn til að ganga til liðs við Hull í dag eftir kaup félagsins á Abel Hernandez frá Palermo.
Athugasemdir
banner
banner
banner