Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. september 2014 20:34
Ívan Guðjón Baldursson
Hatem Ben Arfa er á leið til Hull
Hatem Ben Arfa hefur sýnt flotta takta í úrvalsdeildinni.
Hatem Ben Arfa hefur sýnt flotta takta í úrvalsdeildinni.
Mynd: Getty Images
Hatem Ben Arfa virðist vera á leið til Hull City á síðustu klukkustundum félagsskiptagluggans.

Ben Arfa er 27 ára kantmaður sem býr yfir gríðarlegum hæfileikum en er ekki í náðinni hjá Alan Pardew, stjóra Newcastle.

Ben Arfa var númer 10 hjá Newcastle en treyjunúmerið var tekið af honum og fært yfir á Siem de Jong sem kom til félagsins í sumar.

Ben Arfa á 76 deildarleiki að baki fyrir Newcastle og 13 fyrir franska A-landsliðið.
Athugasemdir
banner