Spænski miðvörðurinn Ignasi Miquel er kominn til Norwich og er kaupverðið óuppgefið, þó það sé talið vera í kringum 2 milljónir punda.
Arsenal á þá aðeins þrjá miðverði eftir í leikmannahópnum og óljóst er hversu lengi Laurent Koscielny verður frá eftir að hafa þurft að koma meiddur af velli gegn Leicester City um helgina.
Arsenal á þá aðeins þrjá miðverði eftir í leikmannahópnum og óljóst er hversu lengi Laurent Koscielny verður frá eftir að hafa þurft að koma meiddur af velli gegn Leicester City um helgina.
Miquel er aðeins 21 árs gamall og skrifar undir þriggja ára samning við Norwich.
Varnarmaðurinn á ellefu landsleiki að baki fyrir unglingalið Spánverja og getur einnig leyst stöðu vinstri bakvarðar.
Athugasemdir