Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 01. september 2014 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
James McArthur til Crystal Palace (Staðfest)
Palace borgaði líklega metfé
Mynd: Getty Images
James McArthur er kominn til Crystal Palace en kaupverð er óuppgefið, þó það sé talið nema um 7 milljónum punda sem væri metfé fyrir Palace.

McArthur er 26 ára gamall skoskur miðjumaður og kemur frá Wigan þar sem hann hefur spilað yfir 120 leiki.

Crystal Palace endaði í ellefta sæti úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og er með eitt stig eftir þrjár umferðir í úrvalsdeild þar sem liðinu tókst að gera 3-3 jafntefli við Newcastle á St. James' Park.
Athugasemdir
banner
banner
banner