Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 01. september 2014 22:19
Daníel Freyr Jónsson
Kranjcar sameinast Harry á ný - Kominn til QPR (Staðfest)
Niko Kranjcar.
Niko Kranjcar.
Mynd: Getty Images
Króatinn Niko Kranjcar hefur skrifað undir árs langan lánssamning hjá QPR og kemur hann til liðsins frá Dynamo Kiev.

Kranjcar lék með QPR í Championship-deildinni á síðustu leiktíð og snýr hann því aftur til félagsins.

Þetta er í fjórða sinn sem Harry Redknapp, stjóri QPR, fær Kranjcar. Áður hafa þeir starfað saman hjá Portsmouth og Tottenham.

Kranjcar er þrítugur að aldri og hefur spilað 81 leik með króatíska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner