Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. september 2014 09:05
Magnús Már Einarsson
Liverpool að lána Coates til Sunderland
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Sunderland sé að krækja í varnarmanninn Sebastian Coates á láni frá Liverpool.

Hinn 23 ára gamli Coates kom til Liverpool fyrir þremur árum síðan en hefur alls ekki náð að festa sig í sessi.

Samtals hefur Coates skorað tvö mörk í 24 leikjum á þessum þremur árum hjá Liverpool.

Gus Poyet, stjóri Sunderland, virðist nú vera að landa Coates en þeir félagar eru báðir frá Úrúgvæ.
Athugasemdir
banner
banner
banner