Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 01. september 2014 14:55
Elvar Geir Magnússon
Taider til Sassuolo (Staðfest)
Saphir Taider í sundi.
Saphir Taider í sundi.
Mynd: Getty Images
Saphir Taider er kominn til Sassuolo á lánssamningi frá Inter.

Þessi alsírski miðjumaður var upphaflega lánaður til Southampton í sumar en enska félagið taldi sig ekki hafa not fyrir hann og skilaði leikmanninum til baka.

Taider lék æfingaleik með Southampton gegn Bayer Leverkusen en var ekkert notaður í mótsleikjum liðsins. Í tilkynningu frá Southampton segir að leikmaðurinn hafi hreinlega ekki staðið undir væntingum.

Sassuolo gerði jafntefli við Cagliari í fyrstu umferð ítölsku A-deildarinnar sem leikin var um helgina.
Athugasemdir
banner
banner