Danny Welbeck mun ganga í raðir Arsenal í kvöld að sögn Sky Sports.
Aresnal ku hafa fengið aukatíma til að ganga frá lausum endum á félagaskiptunum en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 22:00.
Talið er að Arsenal muni borga 16 milljónir punda fyrir Welbeck.
Aresnal ku hafa fengið aukatíma til að ganga frá lausum endum á félagaskiptunum en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 22:00.
Talið er að Arsenal muni borga 16 milljónir punda fyrir Welbeck.
Welbeck hefur verið orðaður við brottför frá Manchester United undanfarna daga en hann er ekki ofarleaga í röðinni hjá Louis van Gaal.
Síðdegis í dag var orðrómur um að Arsenal ætlaði að fá Welbeck á láni en nú virðist félagið ætla að kaupa hann.
Athugasemdir