Helstu fréttir kvöldsins frá Gluggadeginum á Ítalíu eru þær að Yanga-Mbiwa er kominn til Roma og AC Milan hefur fengið til sín Giacomo Bonaventura.
Mapou Yanga-Mbiwa er 25 ára varnarmaður sem kemur frá Newcastle en hann kemur á lánssamningi.
Vængmaðurinn Bonaventura skrifaði undir fimm ára samning við AC Milan en hann kemur frá Atalanta á fimm ára samningi. Bonaventura er 25 ára.
Þá hefur Torino fengið Amauri frá Parma en þessi reynslumikli sóknarmaður á að fylla skarð Alessio Cerci sem fór til Atletico Madrid.
Athugasemdir