Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. september 2014 19:47
Daníel Freyr Jónsson
Zeki Fryers til Crystal Palace (Staðfest)
Zeki Fryers.
Zeki Fryers.
Mynd: Crystal Palace
Varnarmaðurinn Zeki Fryers er formlega genginn í raðir Crystal Palace frá Tottenham.

Fryers skrifaði undir þriggja ára samning hjá Palace, en þessi 21 árs gamli varnarmaður lék einungis 7 úrvalsdeildarleiki eftir að hafa gengið í raðir Tottenham í fyrra.

Kaupverðið nemur þremur milljónum punda.

Fryers kom upp í gegnum unglingastarf Manchester United. Hann spilaði þó einungis tvo leiki með United áður en Tottenham fékk hann í janúar á síðasta ári.
Athugasemdir
banner
banner