Emmanuel Adebayor, framherji Tottenham, ræddi í gær við Slaven Bilic stjóra West Ham.
Adebayor er í viðræðum um að koma til West Ham á láni.
Þessi 31 árs gamli leikmaður er í frystikistunni hjá Tottenham en fyrr í sumar var hann nálægt því að ganga í raðir Aston Villa.
Adebayor er í viðræðum um að koma til West Ham á láni.
Þessi 31 árs gamli leikmaður er í frystikistunni hjá Tottenham en fyrr í sumar var hann nálægt því að ganga í raðir Aston Villa.
Andy Carroll, Enner Valencia og Mauro Zarate eru allir á meiðslalistanum og West Ham er í leit að framherja.
Nikica Jelavic, framherji Hull, mun líklega einnig semja við West Ham í dag sem og Victor Moses kantmaður Chelsea.
Athugasemdir