Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 01. september 2015 16:18
Arnar Geir Halldórsson
Anthony Martial til Man Utd (Staðfest)
Anthony Martial
Anthony Martial
Mynd: Man Utd
Manchester United hefur gengið frá kaupum á Anthony Martial frá Monaco.

Martial gerir fjögurra ára samning við Man Utd og samkvæmt heimildum SkySports er kaupverðið 36 milljónir punda.

Martial yfirgaf æfingabúðir franska landsliðsins í gær og flaug til Manchester borgar. Nú hefur verið gengið frá öllum samningum og hefur þessi 19 ári gamli sóknarmaður staðist læknisskoðun.

Á síðasta tímabili skoraði Martial átta mörk í 31 leik fyrir Monaco í frönsku úrvalsdeildinni. Hann kom til félagsins frá Lyon árið 2013 fyrir 3,6 milljónir punda.

Hann er sjötti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Man Utd í sumar og fer þar með í hóp með þeim Bastian Schweinsteiger, Morgan Schneiderlin, Memphis Depay, Matteo Darmian og Sergio Romero.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner