Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. september 2015 16:55
Arnar Geir Halldórsson
Berahino brjálaður á Twitter - Ætlar ekki að spila fyrir WBA
Berahino er bálreiður í dag
Berahino er bálreiður í dag
Mynd: Getty Images
Saido Berahino er vægast sagt ósáttur með vinnuveitanda sinn í dag og lét það í ljós á Twitter síðu sinni rétt í þessu.

Berahino hefur farið fram á sölu frá WBA en félagið vill ekki selja og hefur hafnað fjórum tilboðum frá Tottenham í dag.

Þessi 22 ára gamli sóknarmaður hefur leikið fyrir WBA frá 11 ára aldri.

West Brom hefur farið fram á 25 milljónir punda fyrir framherjann en Tottenham er ekki tilbúið að borga svo háa upphæð.

Ef fram heldur sem horfir stefnir í verkfall hjá Berahino miðað við orðin sem hann lét falla á Twitter og sjá má hér fyrir neðan.

Þar sendir hann eiganda félagsins, Jeremy Peace, kaldar kveðjur og segist ekki ætla að spila fyrir félagið.

„Sorglegt að geta ekki sagt hvernig félagið hefur farið með mig en ég get opinberlega sagt að ég muni aldrei spila aftur Jeremy Peace“.



Athugasemdir
banner
banner
banner