„Það hefur verið nokkra mánaða bið eftir þessum leik en við erum klárir," segir Birkir Már Sævarsson, bakvörður íslenska landsliðsins. Fótbolti.net ræddi við Birki á hóteli liðsins í gær en framundan er stórleikur gegn Hollandi á Amsterdam Arena á fimmtudag.
„Ef maður fær að spila þá er maður að fara að mæta ansi góðum könturum en maður þekkir ágætlega hvað þeir geta. Maður hefu horft á þá spila í einhver ár."
Gríðarlega mikill áhugi er fyrir leiknum heima á Íslandi og þessi áhugi fer ekki framhjá strákunum okkar.
„Maður fylgist með fjölmiðlum heima og talar við fjölskyldu og vini, það eru allir á nálum og það er bara gaman að því. Það er frábært hversu margir Íslendingar ætla að koma og við ætlum að reyna að ná góðum úrslitum fyrir þá."
„Ef við fáum stig gegn Hollandi er það ekkert til að kvarta yfir. En við viljum fara í leikinn til að vinna hann. Það er búið að stimpla inn í okkur að við getum unnið öll þessi lið."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir