Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 01. september 2015 11:45
Magnús Már Einarsson
Chelsea að kaupa Hector frá Reading
Mynd: Getty Images
Chelsea er að kaupa miðvörðinn Michael Hector frá Reading samkvæmt frétt Sky Sports.

Chelsea mun borga fjórar milljónir punda fyrir hinn 23 ára gamla Hector.

Hector er landsliðsmaður hjá Jamaíka en hann kom til Reading árið 2009. Síðan þá hefur hann farið ellefu sinnum á lán til annarra félaga.

Chelsea er eining að kaupa varnarmanninn Papy Djilobodji frá Nantes.

Papy og Hector eiga að einhverju leyti að koma í stað John Stones en Everton vildi ekki selja hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner