Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 01. september 2015 11:07
Hafliði Breiðfjörð
Amsterdam
Einsi Kaldi mætti með þorsk fyrir landsliðið
Icelandair
Landsliðsnefnd Íslands með Rúnar V. Arnarson í fararbroddi á æfingu Íslands í morgun.  Þeir fengu íslenskan þorsk í hádegismat með landsliðinu í gær.
Landsliðsnefnd Íslands með Rúnar V. Arnarson í fararbroddi á æfingu Íslands í morgun. Þeir fengu íslenskan þorsk í hádegismat með landsliðinu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hluti af undirbúningi íslenska landsliðsins hér í Amsterdam er að maturinn standist gæðakröfur fyrir þennan stóra hóp.

Að þessu sinni var leitað til Einars Björns Árnasonar, sem rekur veitingastaðinn vinsæla Einsa Kalda í Vestmannaeyjum og hann er með í för.

Einsi hafði með sér íslenskan þorsk og gaf liðinu í hádeginu í gær. +

Hann eldar reyndar ekki allt fyrir liðinu á liðshótelinu heldur passar upp á að allt standist kröfur.

Í gær var boðið upp á Fajitas með kjúkling og nautahakki annars vegar og hinsvegar flotta nautasteik.
Athugasemdir
banner
banner
banner