Chelsea hefur staðfest kaup á Papy Djilobodji frá franska úrvalsdeildarliðinu Nantes.
Djilobodji er 26 ára gamall miðvörður sem hefur leikið 12 landsleiki fyrir Senegal.
Hann gerir fjögurra ára samning við Chelsea.
„Ég er mjög ánægður að semja við jafn stórt lið og Chelsea. Ég mun gera mitt besta til að hjálpa liðinu að vinna titla. Ég er þakklátur fyrir þetta tækifæri", sagði Djilobodji við undirskriftina.
Jose Mourinho mun að öllum líkindum bæta öðrum varnarmanni við leikmannahóp sinn áður en glugginn lokar í dag þar sem Michael Hector er á leið til félagsins frá Reading.
.@ChelseaFC is delighted to announce the signing of Papy Djilobodji from Nantes... http://t.co/1lHKPD2XFf pic.twitter.com/4kca7uI7d7
— Chelsea FC (@ChelseaFC) September 1, 2015
Athugasemdir