Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 01. september 2015 15:35
Magnús Már Einarsson
Þriðja tilboði Tottenham í Saido Berahino hafnað
Fær ekki að fara.
Fær ekki að fara.
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur hafnað enn einu tilboðinu frá WBA í framherjann Saido Berahino.

Þetta er þriðja tilboðið sem WBA hafnar frá Tottenham í þessum félagaskiptaglugga.

Jeremy Peace, formaður WBA, vill alls ekki selja Berahino í þessum glugga.

Berahino óskaði sjálfur eftir sölu á dögunum en þeirri beiðni hans var hafnað.

Allt útlit er fyrir að þessi 22 ára gamli leikmaður verði áfram hjá WBA eftir að glugginn lokar.
Athugasemdir
banner
banner
banner