Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. september 2015 15:30
Arnar Geir Halldórsson
Tilboðum Chelsea í Marquinhos hafnað
Mourinho vill nýja varnarmenn
Mourinho vill nýja varnarmenn
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, telur sig greinilega þurfa að styrkja varnarlínu liðsins.

Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar hefur tveimur tilboðum Chelsea í Marquinhos, varnarmann PSG, verið hafnað í dag.

Chelsea hefur þegar fest kaup á einum miðverði úr frönsku deildinni þar sem hinn 26 ára gamli Papy Djilobodji var kynntur til leiks á Stamford Bridge í dag.

Þá er talið líklegt að Michael Hector færi sig um set frá Reading til Chelsea áður en glugginn lokar eftir um það bil eina og hálfa klukkustund.

Sky segir að tilboðin sem PSG hafnaði hafi hljóðað upp á 30-40 milljónir punda en Marquinhos er 21 árs gamall Brasilíumaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner