Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 01. september 2015 10:20
Arnar Geir Halldórsson
Victor Moses lánaður til West Ham (Staðfest)
Moses leikur með West Ham í vetur
Moses leikur með West Ham í vetur
Mynd: Getty Images
Nígeríski landsliðsmaðurinn Victor Moses hefur verið lánaður frá Chelsea til West Ham. Um leið framlengir hann samning sinn við Chelsea til fjögurra ára.

Moses var á láni hjá Stoke á síðustu leiktíð en hann hefur aðeins leikið 24 leiki fyrir Chelsea síðan félagið keypti hann árið 2012.

Á þarsíðustu leiktíð var hann lánaður til Liverpool. Þar að auki hefur þessi 24 ára gamli kantmaður leikið með Crystal Palace og Wigan.

Hann er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við West Ham í dag en áður hafði liðið náð samningum við Alex Song.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner