Belgíski miðjumaðurinn Axel Witsel fær ekki að yfirgefa rússneska stórliðið Zenit.
Witsel fór fram á sölu frá félaginu á dögunum og hefur meðal annars verið orðaður við Tottenham.
„Ég fæ ekki að fara. Zenit tók þessa ákvörðun í gær vegna þess að þeir geta ekki fundið leikmann í staðinn fyrir mig á svo stuttum tíma", sagði Witsel vonsvikinn.
„Þetta er pirrandi því ég var að vonast eftir því að fara. En nú er það öruggt að ég verð hjá Zenit þangað til í janúar".
Leit Tottenham að nýjum miðjumanni stendur því enn yfir en talið er að félagið hafi einnig misst af Victor Wanyama, leikmanni Southampton.
Athugasemdir