Luis Enrique, þjálfari Barcelona, segir að 3-2 tap liðsins gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni hafi verið sér að kenna.
Þeir David Luiz, Marco Verratti og Blaise Matuidi tryggðu PSG sterkan sigur á Parc des Princes og vildi Enrique ekki kenna leikmönnum sínum um.
Þeir David Luiz, Marco Verratti og Blaise Matuidi tryggðu PSG sterkan sigur á Parc des Princes og vildi Enrique ekki kenna leikmönnum sínum um.
,,Það er frekar auðvelt að útskýra þetta tap. Við mættum liði sem er í sama gæðaflokki og við og þeir höndluðu pressuna betur. Við spiluðum ekki jafn vel og við hefðum viljað og þetta voru ekki ósanngjörn úrslit," sagði Enrique.
,,Tapið kemur vegna okkar allra en ég er sá fyrsti sem tekur sökina. Ég er þjálfarinn og ábyrgðin er mín. Ég var ánægður með hugarfar leikmannanna."
Athugasemdir