fös 03. október 2014 15:08
Magnús Már Einarsson
Lokaumferðin á laugardag - Fjöldi vinninga í boði
Mynd: Draumaliðsdeildin
Atli Guðna hefur gefið flest í stig í sumar.
Atli Guðna hefur gefið flest í stig í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Lokaumferðin í Draumaliðsdeild Domino's, opinberum Draumaliðsdeildarleik Pepsi-deildarinnar í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta fer fram á laugardag.

Ljóst er að spennan er mikil í mörgum einkadeildum sem og í aðalkeppninni sjálfri.

Markaðurinn lokar klukkan 12:30 á laugardag.

Sigurvegarinn í síðari hluta deildarinnar mun fá frábæra Lenovo Yoga fartölvu frá Nýherja í verðlaun. Gaman ferðir gefa síðan ferð á leik í enska boltanum fyrir sigurvegarann í heildarkeppninni en mikil spenna er á toppnum. Það er því til mikils að vinna.

Domino's mun síðan gefa sex stigahæstu þátttakendunum í lokaumferðinni pizzur.

Það er ekki of seint að vera með. Skráðu þig til leiks á slóðinni dominos.fotbolti.net.

Stigahæstu mennirnir í sumar:
Atli Guðnason (FH) 123 stig
Árni Vilhjálmsson (Breiðablik) 106 stig
Gary Martin (KR) 102 stig
Jonathan Glenn (ÍBV) 96 stig
Magnús Már Lúðvíksson (Valur) 93 stig
Haukur Heiðar Hauksson (KR) 92 stig

Leikirnir á laugardag:
13:30 Fram - Fylkir
13:30 Keflavík - Víkingur R.
13:30 Breiðablik - Valur
13:30 Fjölnir - ÍBV
13:30 KR - Þór
16:00 FH - Stjarnan

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir
banner