Blaise Matuidi, leikmaður Paris Saint-Germain, var að vonum ánægður með spilamennsku liðsins í 3-2 sigrinum gegn Barcelona í gær.
Franski landsliðsmaðurinn, sem skoraði í leiknum, segir þó að það sé mikilvægt fyrir liðið að spila jafn vel í deildinni heima.
Franski landsliðsmaðurinn, sem skoraði í leiknum, segir þó að það sé mikilvægt fyrir liðið að spila jafn vel í deildinni heima.
,,Við spiluðum frábæran leik gegn frábæru liði. Þetta er mikið afrek," sagði Matuidi við BeIN Sport.
,,Við sýndum að við getum spilað vel í stóru leikjunum. En styrkleiki stórra liða er að spila svona hverja helgi heima og við þurfum að gera það, því við viljum vera á toppnum."
Athugasemdir