Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. október 2014 22:23
Daníel Freyr Jónsson
Rodgers: Balotelli verður að gera meira
Balotelli niðurlútur í kvöld.
Balotelli niðurlútur í kvöld.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, var ekki ánægður með frammistöðu Mario Balotelli í 1-0 tapi liðsins gegn Basel á útivelli í kvöld.

Balotelli hefur skorað eitt mark í fjórum leikjum með Liverpool til þessa, en frammistaða hans í kvöld var ekki góð og var Rodgers ekkert að fela það.

,,Hann var duglegur, en hann verður að gera meir," sagði Rodgers um Ítalann.

,,Svo einfalt er það. Mario verður dæmdur út frá því hvað hann skapar og hvenar hann skorar eða skorar ekki."

,,En strákurinn er að reyna - og það mikið."
Athugasemdir
banner