Anton Freyr Ársælsson fyrirliði Fjölnismanna var í sjöunda himni eftir að Fjölnismenn tryggðu sér bikarmeistaratitilinn í 2.flokki karla á Kópavogsvelli í kvöld. Hann hafði þetta um leikinn að segja.
Hún er gríðarlega ljúf, það er virkilega ljúft að ljúka yngri flokkunum með titil, við höfum ekki unnið marga titla saman við 96 strákarnir og því gríðarlega ljúft að ljúka yngri flokkunum með titli
Fjölnismenn unnu B deildina einnig en liðið hafði fallið á seinasta ári úr A deild en komust strax upp aftur með nokkrum yfirburðum.
Jú það er ljúft en ég hefði viljað vinna A deildina það telur varla að vinna B deildina en við erum með besta liðið í 2.flokki á Íslandi í dag og það er virkilega gaman af því.
Anton var gríðarlega sáttur við stuðninginn í kvöld og var stuttorður um þeirra frammistöðu.
Hnefinn stendur alltaf fyrir sínu og eru frábærir
Við vorum samt ekkert það góðir í dag en við vorum með baráttuna og viljan og það skilaði okkur að lokum. sagði Anton að lokum.
Athugasemdir