Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 01. október 2016 17:45
Jóhann Ingi Hafþórsson
Conte: Ekki auðvelt að koma til baka eftir tvö töp
Antonio Conte líflegur að vanda
Antonio Conte líflegur að vanda
Mynd: Getty Images
Antonio Conte var ánægðurr með 2-0 sigur sinna manna á Hull í dag.

Chelsea var búið að tapa tveim deildarleikjum í röð fyrir leikinn og var því mikilvæg fyrir liðið að koma til baka.

„Við getum enn bætt okkur og við ætlum að bæta okkur. Það er ekki auðvelt að koma til baka eftir tvö töp en þetta var gott svar," sagði ítalinn.

„Allir leikir á Englandi eru erfiðir og ég er ánægður með frammistöðuna. Við skoruðum tvö mörk og héldum hreinu."
Athugasemdir
banner
banner