Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   lau 01. október 2016 17:08
Elvar Magnússon
Garðar fékk gullskóinn: Erfitt að skora í þessari deild
Garðar með gullskóinn í dag.
Garðar með gullskóinn í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er öðruvísi tilfinning að vinna skóinn þegar maður hefur tapað. Það er ekki eins gaman að koma inn í klefa þegar allir eru down fyrir tapið og ég gerði sjálfum mér erfitt fyrir með því að klúðra þessu víti," sagði Garðar Gunnlaugsson framherji ÍA eftir 1-0 tap gegn Val á Hlíðarenda í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í dag.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  0 ÍA

Garðar lét verja frá sér vítaspyrnu í seinni hálfleiknum en þrátt fyrir það náði hann að tryggja sér gullskó adidas fyrir að vera markahæstur í deildinni með 14 mörk.

„Ég er ánægður með liðið, við gerðum betur en í fyrra sem var markmiðið hjá okkur. Svo er fullt af ungum strákum að koma upp og við stefnum á að fara hærra á næsta ári."

„Ég hef verið nokkuð heill síðasta árið og það er ástæðan fyrir stíganda hjá mér síðustu ár. Ég náði góðri 1. deild og góðu sumri í fyrra þar sem ég sleit liðband á miðju sumri og kom svo aftur."

„Fyrir þetta tímabil náði ég nokkuð undirbúningstímabili og það skiptir máli því þetta er physical deild og það sést bara á okkur toppskorurunum hvað er erfitt að skora í þessari deild. Síðustu ár líka, toppskorarar eru ekki með mörg mörk."

Athugasemdir
banner
banner
banner