„Þetta er eins hörmulegt og það getur verið, það er ekki flóknara en það," sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis eftir 3-0 tap gegn KR í dag. Fylkir er fallið úr Pepsi-deildinni eftir tapið.
Hemmi segir ekki endilega margt hafa farið úrskeiðis í dag heldur yfir tímbilið í heild sinni.
Hemmi segir ekki endilega margt hafa farið úrskeiðis í dag heldur yfir tímbilið í heild sinni.
Lestu um leikinn: KR 3 - 0 Fylkir
„Þetta var ekki að gerast í dag, við erum búnir að fá fullt af sénsum til að fá þessi stig sem til þurfti."
Hann veit lítið um framhaldið hjá sér og ætlar hann að byrja á því að fara heim til sín að láta sér líða illa.
„Ég er að fara í fýlu og grenja. Ég veit ekki neitt,"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir