Gunnar Már Guðmundsson, einnig þekktur sem Herra Fjölnir, var að vonum ánægður með 3-0 sigur gegn Breiðablik í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í dag.
Lestu um leikinn: Breiðablik 0 - 3 Fjölnir
Gunnar viðurkennir hins vegar að Fjölnismenn séu svekktir að hafa ekki náð Evrópusæti þrátt fyrir að hafa gert sitt.
„Við erum náttúrulega ánægður með okkar leik og að hafa náð að klára þetta. Fyrir okkur snerist þetta um að klára verkefnið og treysta á aðra. Það er bara þannig þegar maður þarf að treysta á aðra að þá getur allt gerst,“ sagði Gunnar Már að leik loknum.
„Að tapa þessum tveimur leikjum á móti Stjörnunni og KR eru ákveðin vonbrigði. KR var betra en við en gegn Stjörnunni vorum við miklu betri, en þeir refsa okkur með föstum leikatriðum eins og hefur gerst allt of oft í sumar.“
Varðandi framtíð sína hjá Fjölni segir Gunnar: „Fimm, sex ár í viðbót. Neinei, ég er búinn að kvitta undir tveggja ára samning og ég klára hann allavega.“
Athugasemdir