Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 01. nóvember 2014 11:00
Alexander Freyr Tamimi
Fletcher til í slaginn fyrir næsta leik
Steven Fletcher.
Steven Fletcher.
Mynd: Getty Images
Sunderland hefur fengið þær góðu fréttir að Steven Fletcher er tilbúinn í slaginn fyrir leikinn gegn Crystal Palace á mánudag.

Skoski landsliðsmaðurinn fór meiddur af velli eftir 50 mínútur í 2-0 tapinu gegn Arsenal síðasta laugardag, en hann verður þó búinn að jafna sig áður en að næsta leik kemur.

,,Steven er fullkominn, það er ekkert vandamál," sagði knattspyrnustjórinn Gus Poyet á blaðamannafundi.

,,Hann hefur jafnað sig algerlega og æft síðustu tvo daga."

Sunderland verður þó án þeirra Emanuele Giaccherini, Ricky Alvarez, Billy Jones og Sebastian Coates.

Athugasemdir
banner