Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 01. nóvember 2014 11:25
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Man City og Man Utd
Mynd: Guardian
Það er stórleikur í enska boltanum á morgun þar sem Manchester City mætir Manchester United mætir Manchester City.

Leikurinn hefst 13:30 en hitað verður upp fyrir hann í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á eftir.

David Silva verður á meiðslalistanum næstu þrjár til fjórar vikurnar svo hann spilar ekki með City á morgun.

Yaya Toure hefur verið að glíma við nárameiðsli en er í líklegu byrjunarliði City samkvæmt Guardian.

Radamel Falcao er fjarri góðu gamni hjá United en Wayne Rooney snýr aftur úr leikbanni og er leikfær samkvæmt fréttamannafundi Louis van Gaal.

Manchester City hefur unnið fimm af síðustu sex deildarleikjum gegn United.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner