Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 01. nóvember 2014 12:30
Alexander Freyr Tamimi
Strootman sagður vilja fara til United í janúar
Kevin Strootman.
Kevin Strootman.
Mynd: Getty Images
Knattspyrnuvefurinn Goal.com heldur því fram að Kevin Strootman vilji ólmur yfirgefa Roma og fara til Manchester United strax í janúar.

Hollendingurinn er að jafna sig á alvarlegum hnémeiðslum sem urðu til þess að hann missti af HM 2014, en hann ætti að snúa aftur í lið Roma í þessum mánuði.

Roma hefur opinberlega sagt að Strootman sé ekki til sölu, en miðjumaðurinn á að hafa greint félaginu að hann vilji fara til Manchester United. Er hann sagður ofarlega á óskalista Louis van Gaal og er enska félagið tilbúið að láta reyna á Roma.

Strootman er 24 ára gamall og gekk til liðs við Roma frá PSV sumarið 2013.
Athugasemdir
banner
banner