Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. desember 2015 15:48
Elvar Geir Magnússon
Benítez: Engin vandræði milli mín og James
James Rodriguez.
James Rodriguez.
Mynd: Getty Images
Rafa Benítez, þjálfari Real Madrid, neitar þeim fréttaflutningi að Kólumbíumaðurinn James Rodriguez sé óánægður hjá félaginu.

Það hefur aðeins einu sinni gerst á tímabilinu að James hafi spilað heilar 90 mínútur í leik en reyndar hafa meiðsli spilað þar inn í.

Fjölmiðlar hafa haldið fram að James telji Benítez ekki meta sig að verðleikum og leikmaðurinn sé að íhuga stöðu sína.

„James hefur fullan stuðning frá mér. Ég hef mikla trú á honum og það eru engin vandamál," segir Benítez.

„Hann er frábær leikmaður en hefur verið lengi frá vegna meiðsla. Því fleiri æfingar og mínútur í leikjum því nær kemst hann því að vera James sem við þekkjum. Samkeppnin hérna er mikil en eins og ég sagði var ég mjög ánægður með frammistöðu hans gegn Eibar."

Real Madrid er sex stigum frá toppliði Baecelona í spænsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner