Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 01. desember 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Fótbolta.net mótið 2016 - Riðlaskipting og leikjaniðurröðun
Blikar unnu Fótbolta.net mótið 2015.
Blikar unnu Fótbolta.net mótið 2015.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH og KR mætast í opnunarleik Fótbolta.net mótsins árið 2015.
FH og KR mætast í opnunarleik Fótbolta.net mótsins árið 2015.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Stjarnan og ÍBV leika í B-riðli.
Stjarnan og ÍBV leika í B-riðli.
Mynd: Fótbolti.net
Fótbolti.net mun sjötta árið í röð standa fyrir æfingamóti í janúar þar sem sterkustu lið landsins taka þátt.

Í fyrsta skipti verða einungis félög úr Pepsi-deildinni í A-deild en þar á meðal eru KR-ingar sem taka þátt í fyrsta skipti. KR-ingar eru í A-riðli og mæta Íslandsmeisturum FH í opnunarleik mótsins þann 8. janúar.

Líkt og vanalega er liðunum skipt niður í tvo riðla og í kjölfarið er leikið um sæti þar sem efstu liðin í hvorum riðli mætast í úrslitum og svo framvegis. Félag deildardómara mun síðan sjá um dómgæslu á mótinu líkt og áður.

Breiðablik er núverandi meistari en liðið sigraði Stjörnuna í úrslitaleik í febrúar síðastliðnum.

Hér að neðan má sjá riðlaskiptingu í A-deild mótsins á næsta ári sem og drög að leikjaniðurröðun.

Riðlaskipting í neðri deildum Fótbolta.net mótsins mun síðan birtast á næstu vikum.

A-riðill:
FH
KR
ÍA
Þróttur

Föstudagur 8. janúar
21:00 KR - FH (Fífan)

Laugardagur 9. janúar
11:00 ÍA – Þróttur (Akraneshöllin)

Þriðjudagur 12. janúar
19:45 Þróttur – KR (Egilshöll)

Laugardagur 16. janúar
11:00 ÍA – FH (Akraneshöllin)

Þriðjudagur 19. janúar
19:45 Þróttur – FH (Egilshöll)

Laugardagur 23. janúar
11:00 ÍA – KR (Akraneshöllin)

B-riðill:
Stjarnan
Breiðablik
ÍBV
Víkingur Ó.

Laugardagur 9. janúar
11:15 Breiðablik – ÍBV (Fífan)

Þriðjudagur 12. janúar:
20:00 Stjarnan – Víkingur Ó. (Kórinn)

Laugardagur 16. janúar
11:15 Breiðablik – Víkingur Ó. (Fífan)

Sunnudagur 17. janúar
12:45 ÍBV – Stjarnan (Kórinn)

Laugardagur 23. janúar
17:00 Víkingur Ó. – ÍBV (Akraneshöllin)

Þriðjudagur 26. janúar
20:00 Stjarnan – Breiðablik (Kórinn)

Leikir um sæti 30. janúar-2. febrúar

Sigurvegarar Fótbolta.net mótsins frá upphafi:
2011: Keflavík
2012: Breiðablik
2013: Breiðablik
2014: Stjarnan
2015: Breiðablik
Athugasemdir
banner