Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 01. desember 2015 20:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Grealish æfir ennþá með unglingaliði Villa
Jack Grealish í baráttu við Emre Can.
Jack Grealish í baráttu við Emre Can.
Mynd: Getty Images
Jack Grealish æfir ennþá með unglingaliði Aston Villa og þykir ólíklegt að hann ferðist með aðalliðinu er það mætir Southampton um helgina.

Hinn tvítugi og efnilegi leikmaður var látinn æfa með unglinaliðinu þar sem myndir náðust af honum á djamminu eftir 4-0 tap gegn Everton á Goodison Park og einnig kvöldið eftir.

Hann hefur áður verið sektaður af félaginu fyrir að taka inn hlátursgas í hótelherbergi.

Ekki er talið að félagið hafi sektað Grealish á ný en óvíst er hvenær hann byrjar að æfa með aðalliðinu aftur.
Athugasemdir
banner
banner
banner