Það er stórleikur á dagskrá í Bose mótinu í kvöld þar sem Íslandsmeistarar FH taka á móti Stjörnunni.
Stjörnumenn hafa verið mjög áberandi á leikmannamarkaðinum í haust og eru búnir að styrkja leikmannahóp sinn talsvert.
Stjörnumenn hafa verið mjög áberandi á leikmannamarkaðinum í haust og eru búnir að styrkja leikmannahóp sinn talsvert.
Viðureign liðanna verður sýnd í beinni útsendingu á SportTV en Stjarnan gerði 3-3 jafntefli við Fjölni í fyrsta leik Bose mótsins.
FH spilar lokaleik riðilsins næsta mánudag gegn Fjölni og mun liðið sem endar í fyrsta sæti spila úrslitaleik við KR sem er þegar búið að vinna riðil 2.
Bose mótið 2015 - Riðill 1:
20:00 FH - Stjarnan (Kórinn) Beint á SportTV
Athugasemdir