Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 01. desember 2015 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ítalía: Milan áfram í bikarnum eftir framlengingu
Luiz Adriano skoraði fyrsta mark leiksins.
Luiz Adriano skoraði fyrsta mark leiksins.
Mynd: Getty Images
AC Milan 3 - 1 Crotone
1-0 Luiz Adriano ('47)
1-1 Ane Budmir ('68)
2-1 Giacomo Bonaventura ('105)
3-1 Niang ('115)

Stórlið AC Milan lenti í stökustu vandræðum með Crotone í ítölsku bikarkeppninni í kvöld.

Crotone leikur í næst efstu deild Ítalíu.

Luiz Adriano kom Milan liðinu yfir rétt eftir leikhlé og héldu þá flestir að þetta yrði nokkuð þægilegt hjá heimamönnum en svo var nú aldeilis ekki.

Ane Budmir jafnaði nefnilega á 68.mínútu og reyndist það síðasta markið í venjulegum leiktíma.

Í framlenginunni voru Milan menn sterkari og unnu að lokum 3-1.
Athugasemdir
banner
banner