Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 01. desember 2015 19:35
Magnús Már Einarsson
Moyes tilbúinn að starfa aftur fyrir utan Bretland
Mynd: Getty Images
David Moyes, fyrrum stjóri Everton og Manchester United, segist vera opinn fyrir því að starfa aftur utan Bretlands

Moyes var rekinn frá spænska féalginu Real Sociedad á dögunum eftir 364 daga í starfi.

Skotinn er hins vegar ekki af baki dottinn og hann er reiðbúinn að prófa að þjálfa eitthvað annað félag í einni af stóru deildunum í Evrópu.

„Ég er með opinn huga og Spánn hjálpaði mér að fá meiri reynslu," sagði Moyes.

„Ef að rétta tækifærið kemur í einhverri af stóru deildunum þá myndi ég hafa áhuga."
Athugasemdir
banner
banner