Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 01. desember 2015 10:45
Magnús Már Einarsson
PIPARTBWA sér um vörumerkjavöktun fyrir KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ og PIPARTBWA hafa gert með sér samstarfssamning um vörumerkjavöktun og gildir samningurinn fram yfir úrslitakeppni EM karlalandsliða í knattspyrnu 2016. Samningurinn felur í sér að PIPARTBWA gæti hagsmuna KSÍ og sinni vörumerkjavöktun fyrir knattspyrnusambandið.

„Fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og öðrum aðilum sem ekki teljast til samstarfsaðila KSÍ er óheimilt að nota vörumerki KSÍ í auglýsinga- og kynningarskyni. Í þessu felst öll notkun og birting á merki KSÍ og þar með töldum landsliðsbúningnum eða leikmönnum íklæddum landsliðsbúningnum. Þetta á við um alla notkun og birtingu, þar með talið á samfélagsmiðlum. Merkið og landsliðsbúningurinn eru skrásett vörumerki. Öll óréttmæt eða óviðeigandi notkun varðar við lög," segir á vef KSÍ.

„PIPARTBWA sinnir vörumerkjavöktun fyrir hönd KSÍ til loka júlí 2016. Í því felst eftirlit með því að vörumerki KSÍ séu ekki misnotuð í markaðslegum tilgangi af ótengdum aðilum, meðal annars til að gæta að ímynd KSÍ og íslenskrar knattspyrnu og til að verja verðmæti vörumerkja KSÍ."

„Það er ósk KSÍ að þær reglur sem gilda fyrir þau vörumerki sem greint er frá hér að framan og lesa má nánar um á vefsíðu KSÍ séu virtar."


Um vörumerki KSÍ

Öllum fyrirspurnum varðandi reglur um notkun á vörumerkjum KSÍ má beina til PIPARSTBWA í gegnum netfangið [email protected] eða til markaðsstjóra KSÍ í netfangið [email protected]
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner