PSG er með afar gott forskot í frönsku úrvalsdeildinni og eru taplausir.
Fyrir heimsóknina til Angers í dag hafði liðið unnið 13 af fyrstu 15 leikjum sínum og gert tvö jafntefli, nú eru þau hins vegar orðin þrjú eftir markalaust jafntefli.
Angers er í þriðja sæti deildarinnar og hafa komið mikið á óvart en úrslitin voru sanngjörn í leik þar sem Angers liðið varðist mjög vel.
Zlatan Ibrahimovic byrjaði á bekknum í dag en hann kom inná þegar 18 mínútur voru eftir.
PSG er þrátt fyrir jafnteflið með 14 stiga forskot á toppi deildarinnar.
Athugasemdir