Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. desember 2015 11:42
Magnús Már Einarsson
Rooney: Lindegaard er pirrandi
Fílar ekki Lindegaard.
Fílar ekki Lindegaard.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, virðist ekki vera sérstakur aðdáandi danska markvarðarins Anders Lindegaard.

Rooney var spurður að því hvaða núverandi eða fyrrverandi leikmanni Manchester United hann vildi síst festast inn í lyftu með.

„Anders Lindegaard. Hann er bara pirrandi," svaraði Rooney um hæl.

Hinn 31 árs gamli Lindegaard kom til Manchester United árið 2010 en hann fór frá félaginu til WBA í sumar.
Athugasemdir
banner
banner