Fyrir viku birtum við topplista frá Football365 þar sem farið var yfir tíu leikmenn sem hafa komið á óvart á jákvæðan hátt á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni.
Nú speglum við þann lista og skoðum tíu leikmenn sem hafa verið slakari en búist var við.
Sjá einnig:
Tíu sem hafa komið á óvart á jákvæðan hátt
Nú speglum við þann lista og skoðum tíu leikmenn sem hafa verið slakari en búist var við.
Sjá einnig:
Tíu sem hafa komið á óvart á jákvæðan hátt
10) Jordy Clasie (Southampton) - Talað um sem næsta stóra nafn úr hollenska boltanum. Meiðsli settu smá strik í reikninginn en hann var ónotaður varamaður gegn Man City um liðna helgi. Við bíðum enn eftir að sjá það sem var lofað þegar Clasie var keyptur frá Feyenoord.
9) Gökhan Inler (Leicester) - Cambiasso fór og annar reynslumikill miðjumaður kom í staðinn. Hefur vermt varamannabekkinn og auðvelt að gleyma því að Svisslendingurinn var keyptur.
8) Patrick Bamford (Crystal Palace) - Leikmaður ársins í Championship þegar Chelsea lánaði hann til Middlesbrough. Nú var hann lánaður í ensku úrvalsdeildina en til hvers var Crystal Palace að fá hann? Hefur að mestu verið á bekknum.
7) Baba Rahman (Chelsea) - Vinstri bakvörðurinn sem kom frá Augsburg hefur verið stór vonbrigði. Hefur ekki náð að festa sæti í liðinu og hefur hreinlega verið mjög lélegur þegar hann hefur fengið að spila.
6) Matteo Darmian (Manchester United) - Byrjaði vel hjá United en svo fór að halla undan fæti. Eftir dapra leiki var honum hent á bekkinn. Þarf að hugsa sinn gang ef hann ætlar að festa sig í sessi hjá United.
5) Florian Thauvin (Newcastle) - Kom frá Marseille. Hefur ekki byrjað leik síðan í september. Frakkinn virðist engan veginn passa í ensku úrvalsdeildina. Þvílík vonbrigði.
4) Alex Oxlade-Chamberlain (Arsenal) - Hæg afturför hefur einkennt síðustu tvö tímabil hjá Uxanum. Meiðslavesen og er of gjarn á að tapa boltanum á hættulegum stöðum. Vonandi nær hann að verða góður.
3) Saido Berahino (West Brom) - Var næstum farinn til Tottenham í sumar en ekkert varð að því. Á þessu tímabili hefur leikmaðurinn algjörlega verið í skugganum. Spurning hvort hann finni taktinn aftur ef Tottenham fær hann í janúar?
2) Nemanja Matic (Chelsea) - Mourinho lýsti yfir ánægju með stöðugleika Matic þegar leikmaðurinn skrifaði undir nýjan samning. Matic var klettur í liði Chelsea síðasta tímabil en hefur engan veginn fundið sig á þessu. Svo við sýnum sanngirni hefur hann stigið aðeins upp síðustu leiki.
Athugasemdir