„Ég held að það sé mögulegt hægt að mæta auðveldari liðum, en þetta verður geðsjúkt," sagði rapparinn Erpur Eyvindarson eftir að dregið var í riðla fyrir HM í dag.
Ísland er í dauðariðlinum, D-riðlinum, með Argentínu, Nígeríu og vinum okkar í Króatíu.
Ísland er í dauðariðlinum, D-riðlinum, með Argentínu, Nígeríu og vinum okkar í Króatíu.
Erpur er mikill stuðningsmaður Diego Maradona og Argentínu.
„Það verður geðveikt að sjá þetta. Það hefur aldrei borgað sig en að spá öðru en sigri Íslands. Hver hefði spáð því að við hefðum rúllað upp öllum þessum löndum, Englandi og ég veit ekki hvað?"
„Ég er klár í að veðja einhverjum hundarköllum á það að við vinnum Argentínu."
„Þetta verður ógeðslega flottur leikur. Aguero og Messi, það verður gaman að sjá, en það verður aðallega gaman að sjá Aron, Jóa Berg, Gylfa, Alfreð og félaga."
„Ég ætla að sjá allt, ég verð bara í Moskvu. Allan þennan mánuð verð ég í Rússlandi. Þetta verður ævintýri."
Þetta skemmtilega viðtal er hér að ofan.
Athugasemdir