„Við lögðum mikla áherslu á að fá hann fyrst hann var að koma heim og ég fagna þessu," sagði Ólafur Jóhannesson eftir að Kristinn Freyr Sigurðsson skrifaði undir samning hjá Val í kvöld.
Kristinn Freyr er að snúa aftur í Val eftir ársdvöl hjá GIF Sundsvall í Svíþjóð.
Kristinn Freyr er að snúa aftur í Val eftir ársdvöl hjá GIF Sundsvall í Svíþjóð.
Fyrr í vikunni bárust fréttir af því að Kristinn væri að verja á milli FH og Val og FH væri líklegri aðilinn.
„Ég nenni ekki að velta því fyrir mér. Það er þannig að þegar þessir fótboltamenn eru að koma heim þá fara öll liðin af stað."
„Þeir hafa örugglega haft samband við hann en ég hafði aldrei áhyggjur af því. Hann var aldrei á leiðinni í FH."
Rasmus Christiansen er samningslaus og óvíst er með framtíð hans hjá Val. „Rasmus er samningslaus og var að koma heim úr fríi í dag. Ég tek stöðuna með honum eftir helgina," sagði Óli.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir