mán 02. mars 2015 17:46
Elvar Geir Magnússon
„Di Maria er of ómyndarlegur fyrir Real Madrid"
Di Maria með David de Gea.
Di Maria með David de Gea.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria var seldur frá Real Madrid því hann er of ómyndarlegur fyrir félagið. Þetta segir Carles Rexach, stjórnarmaður hjá Barcelona.

Hann segir að Florentino Perez, forseti Real, sé að skapa ímynd fyrir félagið til að auka tekjumöguleika vörumerkisins og Di Maria sé of ómyndarlegur fyrir þá ímynd.

Máli sínu til stuðnings nefnir hann kaup félagsins á Toni Kroos og James Rodriguez.

„Florentino Perez horfir á heimsmarkaðinn í þessum efnum og vill búa til lið sem allir dýrka og dá," segir Rexach í viðtali við spænska útvarpsstöð.

Di Maria var seldur til Manchester United þar sem hann hefur ekki fundið sig þrátt fyrir lofandi byrjun á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner