Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 02. mars 2015 16:49
Magnús Már Einarsson
Enskur leikmaður handtekinn fyrir að sofa hjá 14 ára stúlku
Mynd: Getty Images
The Sun hefur birt frétt þess efnis að enskur fótboltamaður hafi verið handtekinn fyrir að stunda kynlíf með 14 ára stúlku.

Orðrómur er um að leikmaðurinn eigi að landsleiki að baki með enska landsliðinu en það hefur ekki verið staðfest.

Lögreglan rannsakaði hús leikmannsins í morgun en hann á hús sem er metið á 1,8 milljón punda.

Í húsinu fannst meðal annars hlaðin byssa sem lögregla gerði upptæka.

Nafn leikmannsins hefur ekki verið gefið upp en það ætti að koma fram á næstu dögum ef þessi frétt The Sun er á rökum reist.
Athugasemdir
banner
banner
banner